Öldrunardeild
Öldrunardeild HÞ er hjúkrunardeild fyrir aldraða. Á deildinni eru 24 rúm. Tvö rúm eru ætluð til hvíldar- og endurhæfinga innlagna.
RAI-mat hefur verið framkvæmt á öllum íbúum/vistmönnum frá árinu 1996. Um er að ræða mat á raunverulegum aðbúnaði íbúa á öldrunarstofnunum og eru niðurstöðurnar sendar til RAI-matsnefndar sem staðsett er í Reykjavík. Á árinu 1999 var þetta mat fært á tölvutækt form.
Beinn sími á deildina er 464-0570 og eru þar veittar upplýsingar um líðan íbúa til aðstandenda, allan sólarhrigninn.
ATHUGIÐ ! Símanúmer til íbúa er 464-0577
Deildarstjóri er Bryndís Guðlaugsdóttir sími 464-0573,
Yfirlæknir er Ásgeir Böðvarsson sérfræðingur í lyf- og meltingarsjúkdómum.
Heilsugæslulæknar HÞ koma einnig að þjónustu við íbúa deildarinnar.
Símanúmer til íbúa er 464-0577
Vaktsími starfsfólks er 464-0572
Heimsóknartími deildarinnar er frjáls, enda er hér ekki um sjúkradeild að ræða, heldur dvalarstað þar sem íbúinn getur tekið á móti gestum þegar ástand hans leyfir.
Á deildinni starfa u.þ.b. 25 starfsmenn; starfsstúlkur, sjúkraliðar og hjúkrunarfræðingar.
|